Nefndir
Innan Gildis starfa endurskoðunarnefnd, sem fylgist með áhættustýringu og virkni eftirlits, og nefnd um laun stjórnarmanna.
Endurskoðunarnefnd
Stjórn Gildis skipar þriggja manna endurskoðunarnefnd sem starfar í umboði og á ábyrgð hennar. Endurskoðunarnefnd fylgist með áhættustýringu og áhættueftirliti sjóðsins og virkni innra eftirlits og endurskoðunar. Hún á að tryggja fylgni við lög og reglur, gera tillögu að ytri endurskoðanda og meta óhæði hans.
Nefndarmenn:
- Helgi F. Arnarson, formaður
- Inga Jóna Friðgeirsdóttir
- Hólmfríður Kristjánsdóttir
Nefnd um laun stjórnarmanna
Innan Gildis starfar fjögurra manna nefnd um laun stjórnarmanna, en verkefni hennar er að undirbúa og leggja fram tillögu til ársfundar um laun stjórnar fyrir komandi ár.
Fulltrúar atvinnurekenda:
- Gunnar Jónsson
- Íris Hannah Atladóttir
Fulltrúar launamanna:
- Perla Ösp Ásgeirsdóttir
- Þórir Jóhannesson