26. ágúst 2019

Vextir sjóðfélagalána lækka um 20 punkta

Stjórn Gildis ákvað á fundi sem haldinn var í morgun, 26. ágúst, að lækka breytilega vexti verðtryggðra og óverðtryggðra sjóðfélagalána um 20 punkta. Lækkunin á bæði við um grunnlán og viðbótarlán.

Verðtryggðir breytilegir vextir grunnlána lækka úr 2,7% í 2,5% og viðbótarlána úr 3,45 í 3,25%.

Óverðtryggðir breytilegir vextir grunnlána lækka úr 5,6% í 5,4% og viðbótarlána úr 6,35% í 6,15%.

Lækkunin tekur gildi 5. september næstkomandi.

Eftir breytinguna verður vaxtatafla sjóðsins sem hér segir.

Grunnlán (allt að 60% veðhlutfall)Viðbótarlán (60 – 70% veðhlutfall)
Verðtryggð lán (fastir vextir)3,55%4,3%
Verðtryggð lán (breytilegir vextir)2,5%3,25%
Óverðtryggð lán (breytilegir vextir)5,4%6,15%
Til baka í fréttir