23. maí 2022
Vextir óverðtryggðra sjóðfélagalána hækka
Stjórn Gildis hefur ákveðið að hækka óverðtryggða vexti sjóðfélagalána um 85 punkta. Hækkunin mun taka gildi 5. júlí. Óverðtryggðir breytilegir vextir Gildis eru í dag 4,50% af grunnlánum og 5,25% af viðbótarlánum. Eftir hækkunina verða vextir óverðtryggðra grunnlána 5,35% og óverðtryggð viðbótarlán munu bera 6,1% vexti.
Frá og með 5. júlí mun vaxtatafla sjóðsins líta svona út:
| Grunnlán (allt að 65% veðhlutfall) | Viðbótarlán (65-75% veðhlutfall) | |
|---|---|---|
| Verðtryggt - fastir vextir | 2,80% | 3,55% |
| Verðtryggt - breytilegir vextir | 1,60% | 2,35% |
| Óverðtryggt - breytilegir vextir | 5,35% | 6,1% |