21. nóvember 2019
Vel heppnaður fundur sjóðfélaga og fulltrúaráðs
Um sextíu fulltrúaráðsfulltrúar og sjóðfélagar sátu opinn kynningarfund um málefni Gildis á Grand Hótel Reykjavík í gær. Á fundinum fór Árni Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gildis, yfir stöðu og starfsemi sjóðsins á fyrstu tíu mánuðum ársins. Þar kom meðal annars fram að hrein eign samtryggingardeildar sjóðsins í lok október nam 638,4 milljörðum króna og hafði hún hækkað um rúmlega 82 milljarða á árinu.

Í erindi sínu rakti Árni enn fremur að lánveitingar til sjóðfélaga standa nánast í stað milli ára, bæði í fjölda veittra lána og upphæðum. Þá fór hann yfir hluthafastefnu sjóðsins auk þeirrar miklu áskorunar sem hækkandi lífaldur er fyrir lífeyriskerfið í heild sinni.
Kynningu Árna Guðmundssonar af fundinum má skoða hér.
Í kjölfarið fjallaði Henný Hinz, hagfræðingur ASÍ, um samspil almannatrygginga og lífeyrissjóða.
Að lokum var komið að Árna Hrafni Gunnarssyni, lögfræðingi Gildis sem fjallaði um fyrirkomulag við val á stjórnarmönnum og hlutverk fulltrúaráðs sjóðsins í því ferli.