28. desember 2010
Tímabundin opnun séreignarsparnaðar – Breyting á upphæð
Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögunum um tímabundna útborgun séreignarsparnaðar þess efnis að hámarksfjárhæð fyrirframgreiðslu hækkar og verður 5.000.000 m.v. gildistöku laganna 1. janúar 2011.
Ef sjóðfélagi hefur þegar nýtt sér fyrirframgreiðslu (allt að 2.500.000) skv. fyrra greiðslufyrirkomulagi, mun sú upphæð dragast frá.
Athugið að skila þarf nýrri umsókn ef sjóðfélagi óskar eftir nýta sér útborgun skv. nýja ákvæði laganna.
Fjárhæðin skal greiðast út á 12 mánuðum, kr. 416.667 fyrir skatt á mánuði og styttist tíminn hlutfallslega ef um lægri fjárhæð er að ræða.
Umsóknartímabilið eru þrír mánuðir frá 1. janúar 2011 til 31. mars 2011.
Frekari upplýsingar og umsóknareyðublað er að finna hér.