5. nóvember 2008

Tilmæli frá Landssamtökum lífeyrissjóða

Landssamtök lífeyrissjóða hafa sent öllum lífeyrissjóðum tillögur og greinargerð starfshóps á vegum landssamtakanna, um greiðsluvanda og úrræði lífeyrissjóðanna, til aðstoðar við þá sjóðfélaga sem lent geta í greiðsluerfiðleikum.

Helstu úrræði í boði.
Því er beint til sjóðanna að þeir beiti m.a. eftirfarandi úrræðum:

Frystingu lána
Bjóði upp á 6-12 mánaða „frystingu“ lífeyrissjóðslána þ.e. tímabundna ívilnum með breytingu á lánaskilmálum.

Skilmálabreyting
Þeir verði áfram sveigjanlegir gagnvart þeim sem lenda í greiðsluerfiðleikum og bjóði upp á breytta lánaskilmála hér eftir sem hingað til. Í því getur falist:

  • Að vanskil verði lögð við höfuðstól.
  • Lánstími verði lengdur í allt að 40 ár frá útgáfu skuldabréfsins.
  • Gjalddögum verði fækkað eða fjölgað (sumir lífeyrissjóðir leyfa ekki færri en fjóra gjalddaga á ári en aðrir leyfa allt niður í tvo gjalddaga á ári).
  • Veittur verði greiðslufrestir ( innheimtuaðgerðir frestast en dráttarvextir falla á skuld sem gjaldfellur).
  • Heimiluð verði tímabundin skipting vaxta- og höfuðstólsgreiðslna. Taka ber þó fram að sumir lífeyrissjóðir hafa hingað til ekki heimilað þetta.

Gildi-lífeyrissjóður er nú með þessar tillögur í skoðun og fljótlega má búast við fréttum frá sjóðnum varðandi hans úrræði.

Til baka í fréttir