7. október 2008

Tilkynning til félaga í Séreignardeild Gildis

Gildi-lífeyrissjóður verður vegna sérstakra aðstæðna á mörkuðum að loka tímabundið fyrir flutning á eignum á milli fjárfestingarleiða og útborgun úr leiðum I og II í Séreignardeild Gildis. Aðstæður á mörkuðum nú um stundir kalla á lokunina svo gætt sé hagsmuna allra sjóðfélaga Séreignardeildar. Er þetta talin nauðsynleg ráðstöfun þar sem ekki er hægt að reikna gengi og verðmæti ýmissa eigna í Séreignardeild Gildis. Lokunin er tímabundin og biðst Gildi velvirðingar á þeim óþægindum sem hún kann að valda sjóðfélögum. Tilkynning um opnun á flutningi og útborgun verður birt á heimasíðu Gildis.

Til baka í fréttir