8. desember 2009
Sextán lífeyrissjóðir stofna Framtakssjóð Íslands
Þann 8. desember stofnuðu fulltrúar sextán lífeyrissjóða, innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða, formlega Framtakssjóð Íslands, nýtt fjárfestingarfélag sem ætlað er að taka þátt í og móta fjárhagslega og rekstrarlega endurreisn íslensks atvinnulífs í kjölfar falls fjármálakerfisins.
• Stofnendur sjóðsins ráða yfir um 64% af heildareignum lífeyrissjóða á Íslandi.
• Stofnendur hafa skuldbundið sig til að leggja nýja fjárfestingarsjóðnum til um 30 milljarða króna í hlutafé. Enn er opið fyrir skráningu hlutafjár í sjóðnum.
Á stofnfundinum var kjörin sjö manna stjórn Framtakssjóðs Íslands. Hana skipa:
Ágúst Einarsson, rektor Háskólans á Bifröst, Auður Finnbogadóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar, Baldur Þór Vilhjálmsson, forstöðumaður
eignastýringar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins, Guðfinna Bjarnadóttir, fyrrverandi alþingismaður,Ragnar Önundarson, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verslunarmanna, Þorkell Sigurlaugsson, framkvæmdastjóri fjármála- og þróunarsviðs Háskólans í Reykjavík, og Vilborg Lofts, rekstrarstjóri heilbrigðisvísindasviðs Háskóla Íslands.
Varamenn stjórnar eru Sigurbjörn Sigurbjörnsson, framkvæmdastjóri Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda,Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs, Helga Indriðadóttir, sérfræðingur hjá Almenna lífeyrissjóðnum, og Kristján Örn Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sameinaða lífeyrissjóðsins.
Stjórnin kemur saman í fyrsta sinn fimmtudaginn 10. desember og skiptir með sér verkum.
Gert er ráð fyrir að hún auglýsi innan tíðar starf framkvæmdastjóra Framtakssjóðs Íslands laust til umsóknar.
Í skilmálum fyrir Framtakssjóð Íslands er kveðið á um að hann skuli „ávaxta innborgað fé með fjárfestingum í íslenskum fyrirtækjum í öllum atvinnugreinum sem eiga sér vænlegan rekstrargrundvöll.“ Markmiðið er að „byggja upp öflug fyrirtæki sem geta verið leiðandi á sínu sviði og um leið skilað góðri ávöxtun til fjárfesta.“
Sjóðnum er heimilt að fjárfesta erlendis, til dæmis í tengslum við markaðssókn íslenskra fyrirtækja, ekki síst þegar möguleiki er á sameiningu eða samruna við fyrirtæki í eigu sjóðsins hér á landi.
Sjóðurinn mun taka þátt í fjárfestingum sem stuðla að hagræðingu eða samruna fyrirtækja.
Stjórn sjóðsins mun setja honum fjárfestingarstefnu að fenginni umsögn sérstaks tólf manna ráðgjafarráðs sem skipað verður samkvæmt tilnefningum hluthafa.
Sjóðurinn mun setja sér hluthafastefnu sem gerð verður grein fyrir opinberlega þegar þar að kemur. Þar verður meðal annars horft til reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar (nokkrir íslenskir lífeyrissjóðir hafa nú þegar tekið þær upp). Reglurnar taka til umhverfislegra og félagslegra þátta í starfsemi fyrirtækja auk góðra stjórnarhátta.
Sjóðurinn mun setja sér almenn viðmið varðandi umhverfismál, félagslega ábyrgð og mannréttindi.
Gert er ráð fyrir nýfjárfestingum á vegum sjóðsins næstu þrjú árin og að sjóðurinn verði starfræktur í alls sjö ár. Heimilt er að framlengja rekstrartímann í tvígang, í eitt ár í senn.
Stofnendur Framtakssjóðs Íslands 8. desember 2009, í stafrófsröð
Eign í hlutfalli af heildareignum lífeyrissjóða í lok árs 2008
Almenni lífeyrissjóðurinn 5,26%
Eftirlaunasjóður FÍA 0,87%
Festa lífeyrissjóður 3,43%
Gildi lífeyrissjóður 13,13%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 1,69%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 15,60%
Lífeyrissjóður bankamanna, aldursdeild 2,46%
Lífeyrissjóður Rangæinga 0,28%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga 2,11%
Lífeyrissjóður verkfræðinga 1,69%
Lífeyrissjóður Vestfirðinga 1,44%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 1,55%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, A-deild 18,03%
Sameinaði lífeyrissjóðurinn 5,69%
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda 3,66%
Stafir lífeyrissjóður 4,77%
Alls 63,66%