16. desember 2021

Óverðtryggðir breytilegir vextir hækka

Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur ákveðið að hækka óverðtryggða breytilega vexti sjóðfélagalána um tuttugu og fimm punkta og tekur hækkunin gildi mánudaginn 17. janúar.

Vextir óverðtryggðra grunnlána verða eftir breytinguna 4,05% og viðbótarlána 4,80%. Vextir verðtryggðra lána taka ekki breytingum.

Vextir sjóðsins verða eftir breytinguna sem hér segir:

GrunnlánViðbótarlán
Óverðtryggt (breytilegir vextir)4,05%4,80%
Verðtryggt (fastir vextir)3,00%3,75%
Verðtryggt (breytilegir vextir)1,70%2,45%
Til baka í fréttir