16. nóvember 2008

Nýr og öflugur sjóðfélagavefur.

Nýr og öflugur sjóðfélagavefur hefur verið opnaður hér á heimasíðu sjóðsins. Hann gerir sjóðfélögum m.a. kleift að fylgjast með því hvort greiðslur á iðgjöldum þeirra til sjóðsins hafi skilar sér eins og vera ber, skoða réttindi í sjóðnum eins og þau standa á hverjum tíma og reikna framtíðarréttindi miðað við gefnar forsendur. Þá er einnig hægt að skoða stöðu lána sinna hjá sjóðnum og séreign.

Meðal nýjunga sem vert er að vekja athygli á er að nú er hægt að skrá sig inn á vefinn með rafrænum skilríkjum. Rafræn skilríki eru að ryðja sér til rúms og á næstu mánuðum verða gefin út ný debetkort sem innihalda örgjörva með rafrænum skilríkjum sem hægt er að nota við innskráningu á vefinn.

Veflykill að hinum nýja sjóðfélagavef hefur verið sendur öllum sjóðfélögum sem voru með aðgang að gamla vefnum, en einnig er hægt að sækja um veflykil á sjóðflélagavefnum. Vakin er athygli á því að eldri veflyklar gilda ekki fyrir nýjan sjóðfélagavef.

Til baka í fréttir