19. febrúar 2014

Mikill áhugi á að sitja í stjórnum hlutafélaga fyrir hönd Gildis-lífeyrissjóðs

Í lok janúar auglýsti stjórn Gildis-lífeyrissjóðs eftir einstaklingum sem áhuga hefðu á að sitja í stjórnum hlutafélaga fyrir hönd sjóðsins. Viðbrögðin voru góð og ljóst að margir hafa áhuga á að gefa kost á sér, en rúmlega 360 einstaklingar hafa skráð sig hjá sjóðnum. Um er að ræða konur og karla á öllum aldri, með fjölbreyttan bakgrunn, bæði í menntun og störfum og með búsetu á Íslandi og erlendis. Stjórn sjóðsins er þakklát fyrir þennan mikla áhuga og fagnar því að hafa úr jafnfjölbreyttum hópi fólks að velja þegar sjóðurinn á þess kost á grundvelli eignarhalds að tilnefna eða styðja einstaklinga í stjórnir hlutafélaga fyrir sína hönd.

Gildi mun hafa samband við þá einstaklinga sem sjóðurinn hefur hug á að tilnefna eða styðja til stjórnarsetu á hverjum tíma, en bendir jafnframt á að áfram er hægt að skrá sig á heimasíðu sjóðsins.

Til baka í fréttir