21. desember 2006

Lágmarksiðgjald til lífeyrissjóða verður samkvæmt lögum 12% frá 1. janúar 2007

Gerðar hafa verið breytingar á lögum um starfsemi lífeyrissjóða. Lögin munu hafa mest áhrif gagnvart þeim einstaklingum, sem ekki falla undir kjarasamninga á almennum vinnumarkaði, svo og gagnvart sjálfstæðum atvinnurekendum og einyrkjum, sem þurfa nú að greiða frá og með næstu áramótum 12% iðgjald af launum til lífeyrissjóða. Iðgjald launagreiðanda verður því 8% af iðgjaldsstofni en iðgjald launþega 4% eins og verið hefur.

Lögin má sjá hér í heild sinni.

Til baka í fréttir