29. október 2009

Lækkun greiðslubyrði sjóðfélagalána með sjálfkrafa greiðslujöfnun.

Greiðslujöfnun verður sett sjálfkrafa á verðtryggð fasteignaveðlán einstaklinga frá og með gjalddaga í desember samkvæmt lögum frá Alþingi, sem þegar hafa gengið í gildi.

Lenging láns vegna greiðslujöfnunar verður að hámarki þrjú ár í viðbót við núverandi lánstíma.

Lán þurfa að vera í skilum.

Ef lán er í vanskilum, vinsamlegast hafið samband við Lánadeild Gildis – lífeyrissjóðs til að leita samninga um að koma því í skil. Þannig öðlast lántaki rétt til greiðslujöfnunar.
Lán í frystingu verða sjálfkrafa sett í greiðslujöfnun þegar því tímabili lýkur.
Afborganir eru festar m.v. janúar 2008 en eru tengdar greiðslujöfnunarvísitölu. (vísitalan þróast með tilliti til launa og atvinnustigs)

Tilkynna þarf höfnun á sjálfkrafa greiðslujöfnun.

Þeir sem ekki vilja greiðslujöfnun frá og með desember þurfa að tilkynna það til sjóðsins fyrir 20. nóvember. Nánari upplýsingar eru hér.

Gildi – lífeyrissjóður mun birta upplýsingar hér á vefnum um leið og tilefni gefst til og verður lánatökum sent bréf í byrjun nóvember um nánari upplýsingar og framkvæmd greiðslujöfnunarinnar.

Ef einhverjar spurningar vakna vinsamlegast hafið samband við lánadeild í 515-4700

Nánari upplýsingar er hægt að fá á eftirfarandi vefsíðum:

Island.is

Umræða og lög frá Alþingi

Félags- og tryggingamálaráðuneytið

Til baka í fréttir