4. febrúar 2015
Íslenska lífeyriskerfið uppfyllir meginkröfur OECD
Íslenska lífeyriskerfið stenst með ágætum stefnumarkandi tilmæli Efnahags- og framfarastofnunarinnar, OECD, um uppbyggingu lífeyriskerfa: 1) sjóðsöfnun er mikil; 2) öryggisnet almannatrygginga er mikilvægt fyrir lágtekjuhópa; 3) lífeyrisþegar framtíðarinnar fá almennt meiri lífeyri en nú er greiddur. Þetta eru helstu niðurstöður nýrrar rannsóknar á nægjanleika lífeyrissparnaðar sem Fjármálaeftirlitið og Landssamtök lífeyrissjóða kynntu í dag á fjölmennum fundi á Grand Hóteli í Reykjavík.
Rannsóknin er hluti fjölþjóðlegs verkefnis með samræmdri aðferðafræði um nægjanleika lífeyris í ríkjum OECD.
Nánari upplýsingar eru að finna á vef Landssamtaka lífeyrissjóða.
Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.
Skýrsluna má lesa í heild sinni hér.