27. janúar 2014
Hefur þú áhuga á stjórnarsetu í fyrirtæki?
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs leitar að einstaklingum sem áhuga hafa á stjórnarsetu í hlutafélögum með stuðningi sjóðsins. Félögin geta verið skráð í Kauphöll eða óskráð hlutafélög. Gildi leitar að einstaklingum sem uppfylla almenn hæfisskilyrði laga og auk þess önnur skilyrði sem sjóðurinn setur í hverju tilviki og geta þau verið mismunandi eftir aðstæðum hverju sinni. Áhugasamir einstaklingar geta skráð sig hér.
Innlendur hlutabréfamarkaður hefur verið að stækka og eflast undanfarin ár og Gildi-lífeyrissjóður er nú stærri og virkari hluthafi en áður í skráðum og óskráðum félögum. Gildi-lífeyrissjóður setti sér nýja hluthafastefnu í mars 2013 en hefur nú endurskoðað þá stefnu. Ný hluthafastefna var samþykkt á stjórnarfundi 8. janúar 2015 og markar skýrari stefnu og stjórnarhætti sjóðsins sem eiganda í þeim félögum sem hann fjárfestir í.
Í hluthafastefnunni kemur m.a. fram að ef Gildi á þess kost á grundvelli eignarhalds leitast sjóðurinn við að tilnefna vel hæfa fulltrúa í stjórnir félaga, annaðhvort einn og sér eða styðja í samstarfi við aðra aðila eða með þáttöku í valnefnd gefist færi á því. Framkvæmdastjóri, stjórnarformaður og varaformaður stjórnar Gildis mynda valnefnd sem tilnefnir stjórnarmenn í hvert félag. Nefndin nýtur liðsinnis starfsmanna sjóðsins og/eða utanaðkomandi ráðgjafa við leit og val á stjórnarmönnum.
Val á stjórnarmönnum sem Gildi tilnefnir eða vill styðja til stjórnarsetu byggir á faglegu ferli þar sem þættir eins og menntun, fagleg þekking, reynsla, færni og hæfi eru kannaðir. Sérstaklega þarf að huga að samsetningu stjórna hlutafélaga með hliðsjón af fjölbreyttri þekkingu og kynjahlutfalli, og að ekki séu til staðar hagsmunaárekstrar milli einstakra stjórnarmanna og félagsins.
Umsóknir eru trúnaðarmál. Gildi mun hafa samband ef sjóðurinn hefur hug á að tilnefna eða styðja viðkomandi til stjórnarsetu.