26. apríl 2007
Gildi-lífeyrissjóður hækkar áunnin réttindi sjóðfélaga um 10% eða um 18 milljarða.
Á ársfundi Gildis sem haldinn var 25. apríl 2007, var samþykkt tillaga stórnar sjóðsins um að hækka áunnin lífeyrisréttindi sjóðfélaga um 10% og nemur hækkunin 18 milljörðum króna. Þetta er annað árið í röð sem Gildi hækkar réttindin, en árið 2006 hækkaði sjóðurinn áunnin réttindi um 7%. Er þetta gert í ljósi góðrar afkomu sjóðsins á undanförnum árum en meðalraunávöxtun á ári sl. 5 ár er 11%. Nafnávöxtun Gildis árið 2006 var 17% eða 9,6% raunávöxtun.
Þessa góðu ávöxtun á nýliðnu ári má rekja til fjárfestingarstefnu sjóðsins og hagstæðra skilyrða á verðbréfamörkuðum, bæði innanlands og utan. Innlend hlutabréf sjóðsins hækkuðu um 17,6% á meðan Úrvalsvísitala Kauphallar Íslands hækkaði um 15,8%, erlend hlutabréf hækkuðu um 33,5% í krónum, en heimsvísitalan hækkaði um 32,8%.
Fjárfestingartekjur námu samtals 31,3 milljörðum króna og hrein eign til greiðslu lífeyris var 215,4 milljarðar kr. í árslok 2006 og hækkaði um 34 milljarða frá fyrra ári eða 18,8%. Eignaskiptingin var með eftirfarandi hætti í árslok 2006: 49% af eignum sjóðsins voru í innlendum skuldabréfum, 24% í innlendum hlutabréfum og 27% í erlendum verðbréfum.
Á árinu greiddu 4.033 launagreiðendur iðgjöld til sjóðsins, samtals að fjárhæð 7.975 milljónir króna, fyrir 41.487 sjóðfélaga. Sjóðfélagar í árslok 2006 voru samtals 159.129. Lífeyrisgreiðslur námu 4.889 milljónum króna og heildarfjöldi þeirra sem fékk greiddan lífeyri á árinu var 15.071.
Samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt á stöðu sjóðsins í árslok 2006 eru eignir 10,3% umfram heildarskuldbindingar. Í ljósi þessarar góðu stöðu hefur stjórn sjóðsins ákveðið að leggja til við ársfund sem haldinn verður 25. apríl, að áunnin réttindi sjóðfélaga og lífeyrisþega verði hækkuð um 10% frá 1. janúar 2007. Þrátt fyrir þessa hækkun réttinda mun staða sjóðsins verða jákvæð um 4,6% eða um 14,5 milljarða.
Frekari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri sjóðsins, Árni Guðmundsson, í síma 515 4700.
Sjá einnig upplýsingar úr starfsemi sjóðsins á árinu 2006 hér.
hér