29. september 2014

Gildi gerir alvarlegar athugasemdir við áform um að afnema framlag til jöfnunar á örorkubyrði lífeyrissjóða.

Í frumvarpi til laga um ýmsar forsendur frumvarps til fjárlaga fyrir árið 2015 er lagt til að fellt verði niður í áföngum framlag sem greitt hefur verið til jöfnunar örorkulífeyrisbyrði lífeyrissjóða. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld sömdu árið 2005 um að ríkisvaldið tryggði framlög af tryggingargjaldi til að jafna stöðu lífeyrissjóða vegna mismunandi örorkubyrði sjóðanna og var gengið út frá því að þessi ráðstöfun yrði varanleg.

Nú hafa stjórnvöld hins vegar lagt til að örorkuframlagið verði afnumið í áföngum. Breytingin mun hafa þau áhrif að lífeyrisréttindi sjóðfélaga í Gildi verða skert um allt að 4,5%. Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs mótmælir harðlega þessum áformum og telur ekkert hafa komið fram sem réttlæti slíka breytingu og að forsendur breytinganna eigi sér ekki stoð.

Stjórn Gildis hefur sent efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis bréf þar sem skorað er á nefndarmenn að falla frá fyrirhugðum áformum um að afnema örorkuframlagið.

Bréfið má sjá hér.

hér

Til baka í fréttir