27. febrúar 2015
Gildi býður óverðtryggð lán til sjóðfélaga
Gildi-lífeyrissjóður býður nú upp á óverðtryggð lán í fyrsta skipti. Um er að ræða nýjan valkost fyrir sjóðfélaga Gildis til viðbótar við verðtryggð lán sem eru í boði hjá sjóðnum. Óverðtryggð lán Gildis eru með breytilegum vöxtum þar sem sjóðurinn lánar allt að 75% af verðmæti fasteignar.
Grunnlán á 6,2% óverðtryggðum vöxtum
Sjóðurinn býður upp á óverðtryggt grunnlán með breytilegum vöxtum, nú 6,20%, þar sem lánað er allt að 65% af verðmæti fasteignar. Þar að auki býður sjóðurinn upp á viðbótarlán, nú á 6,95% vöxtum, þar sem lánað er fyrir því sem upp á vantar upp í allt að 75% verðmæti fasteignar. Lántökugjald er 0,5% af lánsfjárhæð og lánin eru uppgreiðanleg hvenær sem er án uppgreiðslugjalds.
Nýjar lánareglur taka gildi 1. mars
Stjórn Gildis-lífeyrissjóðs hefur samþykkt nýjar reglur um lán til sjóðfélaga sem taka gildi 1. mars. Helstu breytingar frá fyrri reglum, til viðbótar við óverðtryggð sjóðfélagalán, eru þau nýmæli að sjóðfélagalánum Gildis er nú skipt í grunnlán og viðbótarlán eftir veðsetningarhlutfalli. Með grunnláni geta sjóðfélagar þannig fjármagnað allt að 65% af verðmæti fasteignar, þ.e. 65% veðhlutfall. Viðbótarlán sjóðsins eru hins vegar hugsuð til að fjármagna það sem upp á vantar í allt að 75% af verðmæti fasteignar, þ.e. veðhlutfall á bilinu 65% til 75%. Á þessi breyting bæði við um verðtryggð og óverðtryggð sjóðfélagalán Gildis. Vextir af sjóðfélagalánum sjóðsins eru nú skv. töflu hér að neðan.
Nýjar lánareglur sjóðsins má sjá hér.
Til að opna skjalið þarf að hafa Adobe reader. Ef þú hefur hann ekki getur þú nálgast hann hérna.
hér