20. ágúst 2010

Framtakssjóður Íslands kaupir Vestia af Landsbankanum.

20.08.2010 Framtakssjóður Íslands hefur keypt eignarhaldsfélagið Vestia af Landsbankanum. Þau félög sem fylgja Vestia til Framtakssjóðs Íslands eru eftirfarandi sjö fyrirtæki, en hjá þeim vinna um 6.000 manns, bæði hér á landi og í starfsstöðvum félaganna erlendis.

  • Icelandic sem áður hét SH og er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með samtals 30 dótturfélög og starfsemi í 14 löndum.
  • Teymi sem er eignarhaldsfélag á sviði fjarskipta og upplýsingatækni og á eftirfarandi félög, Vodafone, Skýrr, EJS og HugurAx.
  • Húsasmiðjan sem er byggingavöruverslun með 16 verslanir um allt land.
  • Plastprent sem er leiðandi fyrirtæki í framleiðslu plastumbúða og plastfilma.

Framtakssjóður Íslands greiðir Landsbankanum samkvæmt samkomulaginu 19,5 milljarða króna fyrir Vestia. Hlutir FSÍ í ofangreindum félögum er 100%, nema í Teymi en þar verður hlutur FSÍ liðlega 60%. Landsbankinn mun jafnframt kaupa 30% hlut í FSÍ. Hlutafé Framtakssjóðsins verður væntanlega tvöfaldað úr 30 milljörðum króna í 60 milljarða og gangi það allt eftir mun Landsbankinn kaupa hlut í sjóðnum fyrir allt að 18 milljarða króna. Samkomulagið er með fyrirvara um niðurstöður áreiðanleikakannanna og samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Framtakssjóður Íslands er sjóður í eigu sextán lífeyrissjóða innan vébanda Landssamtaka lífeyrissjóða og hlutverk hans er að taka þátt í og móta endurreisn íslensks atvinnulífs.

Fyrir Landsbankann eru þessi kaup mikilvægt skref meðal annars með tilliti til samkeppnissjónarmiða þar sem eignarhald bankans á stórum fyrirtækjum var tímabundin neyðarráðstöfun vegna erfiðra aðstæðna í íslensku efnahagslífi.

Til baka í fréttir