24. apríl 2010

Fall sparisjóða – áhrif á Gildi.

Vegna frétta af falli BYRS sparisjóðs og Sparisjóðs Keflavíkur og taps lífeyrissjóða vegna þess vill Gildi-lífeyrissjóður upplýsa eftirfarandi. Gildi átti ekki kröfur á Sparisjóð Keflavíkur. Gildi átti kröfur á BYR sem námu rúmlega 1.500 milljónum króna.

Í uppgjöri sjóðsins 31.12.2009 var búið að færa kröfuna verulega niður og stóð hún í rúmlega 430 milljónum króna um sl. áramót. Sjóðurinn hafði fært sérstaka varúðarfærslu vegna kröfunnar umfram það sem forsendur nauðasamnings gerðu ráð fyrir í ljósi þeirrar óvissu sem var um endurheimtur. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var nauðasamningurinn felldur af nokkrum erlendum kröfuhöfum.

Fall BYRS hefur engin áhrif á þá ákvörðun stjórnar sjóðsins að leggja fram tillögu um 7% lækkun réttinda á ársfundi 28. apríl nk.

Til baka í fréttir