24. apríl 2013
Afkoma kynnt á ársfundi.
Afkoma Gildis-lífeyrissjóðs árið 2012 var kynnt á ársfundi sjóðsins í gær, 23. apríl. Helstu niðurstöður uppgjörsins sem kynnt var á fundinum eru þessar:
Hrein eign til greiðslu lífeyris var 302,3 milljarðar króna í árslok og hækkaði um 36,9 milljarða króna frá árslokum 2011. Fjárfestingartekjur voru 33,1 milljarðar króna en voru 20,3 milljarðar árið 2011.
Nafnávöxtun sjóðsins var 12,2% og hrein raunávöxtun var 7,3%. Hrein meðalraunávöxtun sl. 10 ár er 3,4%.
Heildarskuldbindingar sjóðsins voru 4,4% hærri en eignir í lok árs 2012 samkvæmt tryggingafræðilegri úttekt. Staðan batnar milli ára þrátt fyrir að nýjar lífslíkur auki skuldbindingar sjóðsins verulega. Engar breytingar eru gerðar á réttindum sjóðfélaga, en lífeyrisgreiðslur eru verðtryggðar m.v. vísitölu neysluverðs.
Iðgjöld til sjóðsins á árinu 2012 voru 12,5 milljarðar króna og hækkuðu um 5% frá fyrra ári.
Lífeyrisgreiðslur námu 9,1 milljörðum króna og hækkuðu um 12%.
Eignir sjóðsins skiptust þannig í lok árs 2012: 59% voru í innlendum skuldabréfum, 9% í innlendum hlutabréfum, 6% í innlánum og 26% í erlendum verðbréfum.
Alls greiddu 39.467 einstaklingar iðgjöld til Gildis árið 2012. Rúmlega 188.000 einstaklingar eiga réttindi hjá sjóðnum.
Ný stjórn Gildis er þannig skipuð: Heiðrún Jónsdóttir, formaður, Harpa Ólafsdóttir varaformaður, Elínbjörg Magnúsdóttir, Hjörtur Gíslason, Kolbeinn Gunnarsson, Konráð Alfreðsson, Orri Hauksson og Þórunn Liv Kvaran.
Glærur frá ársfundinum eru hér.
Árskýrsla fyrir árið 2012 er hér.
Árskýrsla fyrir árið 2012 á PDF formati er hér.
Ávarp formanns er hér.
Fundargerð ársfundar er hér.
hér
hér
hér
hér.